16.05.2012

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 113 stig í apríl 2012 (janúar 2011=100) og hækkaði um 0,6% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10,1%.
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í apríl 2012.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 510 samningar, sem þinglýstir voru í apríl 2012.  Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt.  Talnaupplýsingar um leiguverð í apríl 2012 eru því unnar upp úr 366 leigusamningum sem þinglýst var í apríl 2012.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í apríl 2012 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

1889

1737

1710

1370

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

-

1746

1242

1234

Kópavogur

-

1363

1539

1016

Garðabær, Hafnarfjörður og Álftanes

-

1633

1394

1283

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

1595

1501

1351

Breiðholt

-

1515

1577

1356

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

1860

1286

-

Suðurnes

-

1105

1017

887

Vesturland

-

1169

945

864

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

-

786

Akureyri

1836

1385

1277

1137

Austurland

-

-

-

-

Suðurland

-

1247

948

706

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks, upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English