29.05.2012

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í apríl 2012

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í apríl 2012 var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 21 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráður í kaupskrá og 19 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 682 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 347 milljónir króna. Heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins var 445 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 276 milljónir króna. Af þessum samningum voru 3 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English