30.05.2012
Fjöldi útgefinna vegabréfa
Í apríl 2012 voru gefin út 4.244 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 3.882 vegabréf í apríl 2011. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 9,3 % milli ára.
Þjóðskrá Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja. Vakin er athygli á því að 23. maí 2006 styttist gildistími almennra vegabréfa úr 10 árum í 5 ár þegar að örgjörva var bætt í vegabréfið. Í maí 2011 runnu fyrstu vegabréfin með örgjörva út og skýrir þetta að einhverju leyti aukna vegabréfaútgáfu.
| Ár | Mánuður | Fjöldi |
|---|---|---|
| 2012 | apríl | 4.244 |
| 2012 | mars | 4.024 |
| 2012 | febrúar | 3.374 |
| 2012 | janúar | 2.766 |
| 2011 | desember | 1.932 |
| 2011 | nóvember | 2.215 |
| 2011 | október | 2.653 |
| 2011 | september | 3.514 |
| 2011 | ágúst | 4.454 |
| 2011 | júlí | 6.007 |
| 2011 | júní | 5.658 |
| 2011 | maí | 5.753 |
| 2011 | apríl | 3.882 |
Smelltu hér til að skoða eldri gögn í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.