04.06.2012

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 25. maí til og með 31. maí 2012 var 91. Þar af voru 65 samningar um eignir í fjölbýli, 23 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.848 milljónir króna og meðalupphæð á samning 31,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 97 milljónir króna og meðalupphæð á samning 13,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 16 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 10 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 390 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af voru 4 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 94 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,8 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 25. maí til og með 31. maí
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 47 34 13 0 54
Seltjarnarnes 1 1 0 0 2
Mosfellsbær 1 0 0 1 3
Kópavogur 20 18 2 0 19
Hafnarfjörður 16 9 5 2 13
Garðabær 5 3 2 0 5
Álftanes 1 0 1 0 1
Samtals 91 65 23 3 97
Velta (millj. kr.) 2.848 3.037
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 31,3 31,3
Suðurnes 7 3 2 2 6
Velta (millj. kr.) 97 139
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 13,8 22
Akureyri 16 10 3 3 9
Velta (millj. kr.) 390 218
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 24,4 24,2
Árborgarsvæðið 5 0 4 1 4
Velta (millj. kr.) 94 93
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 18,8 22,2

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English