Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í maí 2012
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2012 var 492. Heildarvelta nam 15 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 30,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 10,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,8 milljörðum króna.
Þegar maí 2012 er borinn saman við apríl 2012 fjölgar kaupsamningum um 41,4% og velta eykst um 45,3%. Í apríl 2012 var þinglýst 348 kaupsamningum, velta nam 10,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,7 milljónir króna.
Þegar maí 2012 er borinn saman við maí 2011 fjölgar kaupsamningum um 19,1% og velta eykst um 22,1%. Í maí 2011 var þinglýst 413 kaupsamningum, velta nam 12,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,8 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 32 í maí 2012 eða 6,9% af öllum samningum. Í apríl 2012 voru makaskiptasamningar 24 eða 7,4% af öllum samningum. Í maí 2011 voru makaskiptasamningar 32 eða 8% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.
|
Apríl 2012 |
Maí 2012 |
Breyting | |||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
||
| Fjölbýli |
6.392 |
254 |
10.169 |
375 |
59,1% |
47,6% | |
| Sérbýli |
3.120 |
71 |
4.019 |
88 |
28,8% |
23,9% | |
| Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
814 |
23 |
820 |
29 |
0,8% |
26,1% | |
| Samtals |
10.326 |
348 |
15.008 |
492 |
45,3% |
41,4% | |
|
Maí 2011 |
Maí 2012 |
Breyting | |||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
||
| Fjölbýli |
8.752 |
326 |
10.169 |
375 |
16,2% |
15,0% | |
| Sérbýli |
3.313 |
73 |
4.019 |
88 |
21,3% |
20,5% | |
| Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
232 |
14 |
820 |
29 |
254,1% |
107,1% | |
| Samtals |
12.296 |
413 |
15.008 |
492 |
22,1% |
19,1% | |
|
|
Maí 2011 |
Apríl 2012 |
Maí 2012 |
Breyting á milli ára |
Breyting á milli mánaða |
|---|---|---|---|---|---|
|
Samningar |
399 |
325 |
463 |
16,0% |
42,5% |
|
Makaskipti eða lausafé |
33 |
25 |
33 |
0,0% |
32,0% |
|
Makaskipti |
32 |
24 |
32 |
0,0% |
33,3% |
|
Lausafé |
1 |
1 |
1 |
0,0% |
0,0% |
|
Hlutfall makaskipta |
8,0% |
7,4% |
6,9% |
- |
- |
Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.