20.06.2012

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 111.1 stig í maí 2012 (janúar 2011=100) og lækkaði um 1,7% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,2%.
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í maí 2012.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 602 samningar, sem þinglýstir voru í maí 2012.  Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt.  Talnaupplýsingar um leiguverð í maí 2012 eru því unnar upp úr 448 leigusamningum sem þinglýst var í maí 2012.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í maí 2012 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

1885

1914

1587

1423

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2342

1790

1608

1442

Kópavogur

1696

1630

1316

1217

Garðabær, Hafnarfjörður og Álftanes

1793

1652

1430

1175

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

1515

1511

1234

Breiðholt

1748

1500

1485

1281

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

1523

1424

921

Suðurnes

-

1187

966

781

Vesturland

-

1101

865

994

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

1334

1090

652

Akureyri

-

1441

1192

958

Austurland

-

-

-

-

Suðurland

1741

1065

1148

845

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks, upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English