Viðskipti með atvinnuhúsnæði í maí 2012
Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í maí 2012 var 63 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 54 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 2.179 milljónir króna en 1.462 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 32 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Á sama tíma voru 28 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá og 17 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 803 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 719 milljónir króna. Heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins var 423 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 321 milljón króna. Af þessum samningum voru 14 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.