Velta á markaði
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 20. júlí til og með 26. júlí 2012 var 88. Þar af voru 64 samningar um eignir í fjölbýli, 18 samningar um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.542 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,9 milljónir króna.
Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 140 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20 milljónir króna.
Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 154 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,9 milljónir króna.
Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þeir voru um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 124 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,7 milljónir króna.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.
| Samtals | Fjölbýli | Sérbýli | Aðrar eignir | Meðaltal sl. 12 vikna | |
|---|---|---|---|---|---|
| Höfuðborgarsvæðið | |||||
| Reykjavík | 42 | 34 | 7 | 1 | 63 |
| Seltjarnarnes | 1 | 1 | 0 | 0 | 2 |
| Mosfellsbær | 6 | 3 | 2 | 1 | 3 |
| Kópavogur | 10 | 8 | 2 | 0 | 17 |
| Hafnarfjörður | 19 | 14 | 1 | 4 | 15 |
| Garðabær | 8 | 4 | 4 | 0 | 7 |
| Álftanes | 2 | 0 | 2 | 0 | 2 |
| Samtals | 88 | 64 | 18 | 6 | 108 |
| Velta (millj. kr.) | 2.542 | 3.260 | |||
| Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 28,9 | 30,1 | |||
| Suðurnes | 7 | 1 | 5 | 1 | 8 |
| Velta (millj. kr.) | 140 | 180 | |||
| Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 20 | 21,8 | |||
| Akureyri | 7 | 4 | 2 | 1 | 10 |
| Velta (millj. kr.) | 154 | 243 | |||
| Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 21,9 | 25,4 | |||
| Árborgarsvæðið | 7 | 0 | 7 | 0 | 4 |
| Velta (millj. kr.) | 124 | 90 | |||
| Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 17,7 | 21,3 | |||
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.
Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.