02.08.2012

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2012

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2012 var 470. Heildarvelta nam 13,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 9,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 3,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,9 milljörðum króna.

Þegar júlí 2012 er borinn saman við júní 2012 fækkar kaupsamningum um 4,1% og velta minnkar um 9,2%. Í júní 2012 var þinglýst 490 kaupsamningum, velta nam 14,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,4 milljónir króna.

Þegar júlí 2012 er borinn saman við júlí 2011 fjölgar kaupsamningum um 5,4% og velta eykst um 12,2%. Í júlí 2011 var þinglýst 446 kaupsamningum, velta nam 12,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 27 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 31 í júlí 2012 eða 7% af öllum samningum. Í júní 2012 voru makaskiptasamningar 24 eða 5,1% af öllum samningum. Í júlí 2011 voru makaskiptasamningar 22 eða 5,2% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á júní 2012 og júlí 2012

Júní 2012

Júlí 2012

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

9.467

364

9.145

362

-3,4%

0,5%

Sérbýli

4.721

107

3.526

78

-25,3%

-27,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

710

19

864

30

21,8%

57,9%

Samtals

14.898

490

13.535

470

-9,2%

-4,1%

 

Tafla 2. Samanburður á júlí 2011 og júlí 2012

Júlí 2011

Júlí 2012

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

8.110

342

9.145

362

12,8%

5,8%

Sérbýli

3.629

84

3.526

78

-2,8%

-7,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

320

20

864

30

170,5%

50,0%

Samtals

12.058

446

13.535

470

12,2%

5,4%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
 
Júlí 2011
Júní 2012
Júlí 2012
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
426
470
440
3,3%
-6,4%
Makaskipti eða lausafé
25
25
32
28,0%
28,0%
Makaskipti
22
24
31
40,9%
29,2%
Lausafé
3
1
1
-66,7%
0,0%
Hlutfall makaskipta
5,2%
5,1%
7,0%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English