19.02.2010

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 12. febrúar til og með 18. febrúar 2010 var 57. Þar af voru 48 samningar um eignir í fjölbýli og 9 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 1.390 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 99 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 54 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 61 milljónir króna og meðalupphæð á samning 15,2 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 12. febrúar til og með 18. febrúar
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 33 28 5 0 22
Seltjarnarnes 1 1 0 0 1
Mosfellsbær 1 0 1 0 2
Kópavogur 13 13 0 0 9
Hafnarfjörður 6 4 2 0 5
Garðabær 3 2 1 0 5
Álftanes 0 0 0 0 0
Samtals 57 48 9 0 43
Velta (millj. kr.) 1.390 1.609
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 24,4 37,4
Suðurnes 5 3 1 1 3
Velta (millj. kr.) 99 137
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 19,8 41,2
Akureyri 3 0 2 1 5
Velta (millj. kr.) 54 102
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 17,8 21,2
Árborgarsvæðið 4 1 3 0 3
Velta (millj. kr.) 61 52
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 15,2 18,2

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English