02.06.2010

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í maí 2010

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2010 var 210. Heildarvelta nam 5,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 27,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 3,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 1,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,7 milljörðum króna.

Þegar maí 2010 er borinn saman við apríl 2010 fjölgar kaupsamningum um 7,7% og velta eykst um 8,7%. Í apríl 2010 var þinglýst 195 kaupsamningum, velta nam 5,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 27,3 milljónir króna.

Þegar maí 2010 er borinn saman við maí 2009 fjölgar kaupsamningum um 23,5% og velta minnkar um 2,2%. Í maí 2009 var þinglýst 170 kaupsamningum, velta nam 5,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 34,8 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 49 í maí 2010 eða 25,5% af öllum samningum. Í apríl 2010 voru makaskiptasamningar 36 eða 19,9% af öllum samningum. Í maí 2009 voru makaskiptasamningar 79 eða 48,8% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á apríl 2010 og maí 2010

Apríl 2010

Maí 2010

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

3.394

147

3.602

155

6,1%

5,4%

Sérbýli

1.494

34

1.524

37

2,0%

8,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

439

14

666

18

51,6%

28,6%

Samtals

5.327

195

5.791

210

8,7%

7,7%

 

Tafla 2. Samanburður á maí 2009 og maí 2010

Maí 2009

Maí 2010

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

3.109

121

3.602

155

15,8%

28,1%

Sérbýli

1.921

41

1.524

37

-20,7%

-9,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

890

8

666

18

-25,1%

125,0%

Samtals

5.919

170

5.791

210

-2,2%

23,5%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

Maí 2009

Apríl 2010

Maí 2010

Breyting milli ára

 Breyting milli mánaða

Samningar

162

181 

192

18,5%

6,1% 

Makaskipti eða  lausafé

80

37 

49

-38,8%

32,4% 

Makaskipti

79

36 

49

-38,0%

36,1% 

Lausafé

1

1

0,0%

0,0%

Hlutfall

48,8%

19,9% 

25,5% 

-

-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English