30.07.2010

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 23. júlí til og með 29. júlí 2010 voru 54. Þar af var 41 samningur um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.425 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Suðurnesjum*. Hann var um eign í sérbýli. Upphæð samnings var 18 milljónir króna.

Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 152 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar voru 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 76 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,2 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 23. júlí til og með 29. júlí
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 32 28 3 1 29
Seltjarnarnes 3 3 0 0 1
Mosfellsbær 4 3 1 0 2
Kópavogur 8 5 1 2 10
Hafnarfjörður 5 1 4 0 8
Garðabær 2 1 1 0 4
Álftanes 0 0 0 0 0
Samtals 54 41 10 3 55
Velta (millj. kr.) 1.425 1.433
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 26,4 26,2
Suðurnes 1 0 1 0 5
Velta (millj. kr.) 18 194
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 18,2 40,2
Akureyri 6 2 1 3 6
Velta (millj. kr.) 152 164
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 25,4 26,3
Árborgarsvæðið 3 0 3 0 2
Velta (millj. kr.) 76 50
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 25,2 21,2

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English