02.09.2010

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2010

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2010 var 211. Heildarvelta nam 6,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 30,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli nam 4,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 1,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,6 milljörðum króna.

Þegar ágúst 2010 er borinn saman við júlí 2010 fækkar kaupsamningum um 24,9% og velta minnkar um 14,8%. Í júlí 2010 var þinglýst 281 kaupsamningi, velta nam 7,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 27 milljónir króna.

Þegar ágúst 2010 er borinn saman við ágúst 2009 fjölgar kaupsamningum um 37% og velta eykst um 39,1%. Í ágúst 2009 var þinglýst 154 kaupsamningum, velta nam 4,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 38 í ágúst 2010 eða 18,9% af öllum samningum. Í júlí 2010 voru makaskiptasamningar 50 eða 18,9% af öllum samningum. Í ágúst 2009 voru makaskiptasamningar 45 eða 30,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á júlí 2010 og ágúst 2010

Júlí 2010

Ágúst 2010

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

4.466

203

4.074

161

-8,8%

-20,7%

Sérbýli

2.445

61

1.749

40

-28,5%

-34,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

680

17

644

10

-5,4%

-41,2%

Samtals

7.592

281

6.467

211

-14,8%

-24,9%

 

Tafla 2. Samanburður á ágúst 2009 og ágúst 2010

Ágúst 2009

Ágúst 2010

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

2.867

119

4.074

161

42,1%

35,3%

Sérbýli

1.201

29

1.749

40

45,6%

37,9%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

581

6

644

10

10,7%

66,7%

Samtals

4.649

154

6.467

211

39,1%

37,0%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

Ágúst 2009

Júlí 2010

Ágúst 2010

Breyting á
milli ára

 Breyting á
milli mánaða

Samningar

148

264

201

35,8%

-23,9%

Makaskipti eða  lausafé

45

50

38

-15,6%

-24,0%

Makaskipti

45

50

38

-15,6%

-24,0%

Lausafé

0

0

0

-

-

Hlutfall

30,4%

18,9%

18,9%

-

-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English