08.02.2012

Talningar úr þjóðskrá

Bannskrá Þjóðskrár Íslands
Samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000 skal Þjóðskrá Íslands halda skrá yfir þá sem andmæla því að nöfn þeirra séu notuð í markaðssetningarstarfsemi.

Skrá þessi nefnist bannskrá. Séu menn skráðir á bannskrá eiga þeir hvorki að fá sendan markpóst, sem sendur er eftir úrtaki úr þjóðskrá, né lenda í úrtaki skoðanakannana.

Á bannskrá voru 23.510 einstaklingar 7. febrúar 2012. Þar af voru karlar 18 ára og eldri 10.983 og konur 12.239 en börn 17 ára og yngri 288.

Á höfuðborgarsvæði bjuggu 17.613 og utan þess 5.897. Íslenskir ríkisborgarar voru 23.344 en erlendir ríkisborgarar voru 166.

Einstaklingar á bannskrá skiptust sem hér segir eftir kyni, lögheimili og fæðingarári:

 

Landsvæði

Alls Karlar Konur %
Höfuðborgarsvæði

17.613

8.288

9.325

8,6

Suðurnes

1.162

563

599

5,5

Vesturland

751

366

385

4,9

Vestfirðir

415

202

213

6,0

Norðurland vestra

276

139

137

3,8

Norðurland eystra

1.345

637

708

4,6

Austurland

602

305

297

4,9

Suðurland

1.346

639

707

5,7

Allt landið

23.510

11.139

12.371

7,4

 

Fæðingarár

Alls Karlar Konur %
1991 og síðar

443

245

198

0,5

1981-1990

1.011

535

476

2,2

1971-1980

2.910

1.466

1.444

6,6

1961-1970

5.331

2.529

2.802

12,6

1951-1960

6.034

2.857

3.177

15,2

1941-1950

4.262

2.018

2.244

15,6

1931-1940

2.374

1.048

1.326

15,0

1930 og fyrr

1.145

441

704

11,7

Alls

23.510

11.139

12.371

7,4

Öllum er heimil afnot af fréttinni en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English