25.07.2012

Fjöldi útgefinna vegabréfa

Í júní 2012 voru gefin út 6.932 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 5.658 vegabréf í júní 2011. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 22,5% milli ára.

Þjóðskrá Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja. Vakin er athygli á því að 23. maí 2006 styttist gildistími almennra vegabréfa úr 10 árum í 5 ár þegar að örgjörva var bætt í vegabréfið. Í maí 2011 runnu fyrstu vegabréfin með örgjörva út og skýrir þetta að einhverju leyti aukna vegabréfaútgáfu.

Ár Mánuður Fjöldi
2012 júní 6932
2012 maí 6344
2012 apríl 4244
2012 mars 4024
2012 febrúar 3374
2012 janúar 2766
2011 desember 1932
2011 nóvember 2215
2011 október 2653
2011 september 3514
2011 ágúst 4454
2011 júlí 6007
2011 júní 5658

Smelltu hér til að skoða eldri gögn í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English