02.08.2012

Fasteignamarkaðurinn á Akureyri, Árborgarsvæðinu, Akranesi og Reykjanesbæ í júlí 2012

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í júlí 2012 var 37. Þar af var 21 samningur um eign í fjölbýli, 15 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 1.058 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 22 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu *. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 18 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 421 milljón króna og meðalupphæð á samning 19,1 milljón króna.

Á sama tíma var 11 samningum þinglýst á Akranesi. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 229 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 21 samningi þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 14 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 529 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,2 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir í júlí 2012

Akureyri

Árborgarsvæðið

Akranes

Reykjanesbær

Tegund
eignar

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

540

21

39

2

126

7

219

14

Sérbýli

507

15

365

18

79

3

131

5

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

10

1

16

2

24

1

179

2

Samtals

1.058

37

421

22

229

11

529

21

 

*Sveitarfélögin: Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English