12.01.2009
Nýtt fasteignamat
Nýtt fasteignamat gekk í gildi 31. desember 2008. Fasteignamat skal endurspegla staðgreiðsluverð fasteignar miðað við verðlag fasteigna í nóvembermánuði 2008. Frestur til að óska endurskoðunar á fasteignamati frá og með 31. desember 2008 er til 1. mars 2009. Kæra má úrskurð Fasteignaskrár Íslands til yfirfasteignamatsnefndar. Upplýsingar um fjárhæðir fasteignamatsins er að finna á www.fasteignaskra.is og á álagningarseðlum fasteignagjalda sveitarfélaga. Eigendur fasteigna getaeinnig fengið þessar upplýsingar sendar í tölvupósti eða póstsendar og skal beiðni þar að lútandi berast á fasteignaskra@fasteignaskra.is.