Lítil breyting á fasteignamati
Heildarfasteignamat á landinu öllu samkvæmt fasteignamati sem gekk í gildi 31. desember 2008 var 4.247 milljarðar. Þar af var fasteignamat húsa 3.506 milljarðar og fasteignamat lóða 741 milljarðar. Fasteignamat samtals hækkaði um 4,5% frá 31. desember 2007. Af þeirri hækkun er 0,3% til komin vegna árlegs framreiknings fasteignamats en 4,2% er til komin vegna fasteignamats nýrra fasteigna og eigna sem eru í byggingu. Fasteignamat á höfuðborgarsvæðinu var 3.069 milljarðar en 31. desember 2007 var það 2.971 milljarður, sem er 3,3% hækkun en framreikningur fasteignamatsins fól í sér 0,4% lækkun þess. Fasteignamat utan höfuðborgarsvæðis var 1.178 milljarðar en 31. desember 2007 var það 1.093 milljarðar, sem er 7,7% hækkun. Þar af nam hækkun vegna framreiknings fasteignamatsins 2%.