Ársfundur norrænna fasteignaskráninga- og landmælingastofnana
Ársfundur norrænna fasteignaskráninga- og landmælingastofnana var haldinn á Akureyri 30. ágúst - 2. september. Fasteignaskrá Íslands og Landmælingar Íslands tóku þátt í fundinum af hálfu Íslands.
Fundurinn hófst með móttöku í Listasafni Akureyrar þar sem Margrét Hauksdóttir, aðstoðarforstjóri Fasteignaskrár Íslands bauð gesti velkomna til landsins og kynnti Sigrúnu Björk Jakobsdóttur formann bæjarráðs og stjórnarmann í Fasteignaskrá Íslands sem bauð gesti velkomna til Akureyrar og sagði aðeins frá bænum.
Fundarstjórn var í höndum Magnúsar Guðmundssonar forstjóra Landmælinga Íslands og opnunarræðu á fundinum flutti Haukur Ingibergsson forstjóri Fasteignaskrár Íslands þar sem hann fór þar yfir efnahagsástandið hér á landi og hvaða áhrif það hefur haft á stofnanirnar til þessa. Á dagskrá fundarins var fjallað um margvísleg sameiginleg viðfangsefni og hagsmunamál, þróun verkefna og samstarfs.