01.07.2010

Þjóðskrá Íslands tók til starfa 1. júlí 2010

Alþingi samþykkti hinn 15. júní sl. lög um sameiningu Fasteignaskrár Íslands og Þjóðskrár í nýja stofnun, Þjóðskrá Íslands. Stofnunin tók til starfa 1. júlí og sinnir þeim verkefnum sem Fasteignaskrá Íslands og Þjóðskrá höfðu með höndum. Markmið sameiningarinnar er framþróun í skrárhaldi og fjárhagsleg hagkvæmni.

Höfuðstöðvar Þjóðskrár Íslands eru að Borgartúni 21, Reykjavík. Einnig eru skrifstofur að Hafnarstræti 95, Akureyri og Austurvegi 4, Selfossi. Veffang hinnar nýju stofnunar er www.skra.is , tölvupóstfang afgreiðslu skra@skra.is  og símanúmer 515 5300.  Starfsmenn beggja aðila eru áfram að störfum hjá Þjóðskrá Íslands til að tryggja að ekkert rof verði á þjónustu og stjórnsýslu hinnar nýju stofnunar við sameininguna.

Þjóðskrá Íslands er skráarhaldari tveggja mikilvægra skráa, þjóðskrár og fasteignaskrár. Í þjóðskrá eru skráðar ýmsar upplýsingar um íbúa landsins, til dæmis nöfn manna, lögheimili, hjúskaparstaða og ríkisfang. Í fasteignaskrá eru skráðar margháttaðar upplýsingar um landeignir, mannvirki og þinglýst réttindi ásamt upplýsingum um fasteignamat, brunabótamat og fasteignamarkaðinn.

Sjá nánar um sameininguna í vefriti dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins frá júní 2010.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English