Þjóðskrá Íslands tilkynnir fasteignaeigendum í júní ár hvert um nýtt fasteignamat. Það tekur gildi 31. desember 2012 og gildir fyrir árið 2013. Fasteignamat ársins 2013 miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2012. Frestur til að gera athugasemdir við nýja fasteignamatið er til 1. ágúst 2012.
Birting fasteignamats verður með þeirri nýbreytni að nú geta fasteignaeigendur nálgast mat eigna sinna þegar þeim hentar á upplýsinga- og þjónustuveitunni island.is í stað þess að tilkynning sé send út með hefðbundnum bréfpósti.
Fasteignaeigendur geta einnig nálgast matið á skra.is með því að slá inn götuheiti eða hafa samband við Þjóðskrá Íslands og óskað eftir því að fá tilkynningaseðilinn sendan með bréfpósti.
Tilkynningaseðill fasteignamats verður ekki sendur í tölvupósti til einstaklinga þar sem um er að ræða persónulegar upplýsingar. Einstaklingar geta með símtali eða tölvupósti óskað eftir því að fá tilkynningaseðilinn sendan með bréfpósti. Lögaðilar, þ.e. fyrirtæki og stofnanir, geta hins vegar fengið tilkynningaseðil sendan í tölvupósti.
Skýrsla um fasteignamat 2013 (pdf, 1.16 MB)
Fasteignamat eftir sveitarfélögum
Fréttatilkynning fyrir fjölmiðla
Matssvæði og undirmatssvæði á höfuðborgarsvæðinu
(Gögn notuð við endurmatið excel) (Gögnin á csv formi) (Skýringar við csv skrá)