12.06.2012

Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í maí 2012

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í maí 2012.

Heildarfjöldi samninga á landinu var 613 í maí 2012 og fjölgar þeim um 22,4% frá apríl 2012 en fækkar um 19,4% frá maí 2011.

Maí 2011 Apríl 2012 Maí 2012 Breyting milli ára Breyting milli mánaða
Höfuðborgarsvæðið 516 350 410 -20,5% 17,1%
Suðurnes 70 63 71 1,4% 12,7%
Vesturland 40 18 24 -40% 33,3%
Vestfirðir 6 2 5 -16,7% 150%
Norðurland 79 40 72 -8,9% 80%
Austurland 12 4 5 -58,3% 25%
Suðurland 38 24 26 -31,6% 8,3%
Samtals 761 501 613 -19,4% 22,4%

Smelltu hér til að skoða tímaraðir frá árinu 2005 í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.