Skilgreiningar á matsstigi Þjóðskrár Íslands
Matsstig 1
- Byggingar- og framkvæmdaleyfi.
- Markar upphaf að byggingarsögu mannvirkis. Bygginganefndarteikningar berast frá byggingafulltrúa til Þjóðskrár Íslands sem skráir mannvirki í fasteignaskrá.
Matsstig 2
- Undirstöður.
- Framkvæmdir við mannvirkið eru hafnar og undirstöður burðavirkis fullgerðar. Botnplata skal vera komin ef hún er berandi hluti af undirstöðum.
Matsstig 3
- Burðarvirki reist.
- Burðarvirki mannvirkis hefur verið reist.
Matsstig 4
- Mannvirki fokhelt.
- Mannvirki telst fokhelt þegar þak hefur verið klætt vatnsverju og glugga- og dyraop verið gustlokað. Við fokheldi reiknast verðmæti mannvirkis inní fasteignamatið.
Matsstig 5
- Mannvirki tilbúið til innréttingar. Mannvirki / notkunareining er tilbúið(n) til innréttingar. Frágangur á skilveggjum (steyptum/hlöðnum) er lokið.
- Tré- eða málmgrindarveggir klæddir og tilbúnir til spörtlunar og aðrir veggir frágengnir á samsvarandi hátt.
- Gólf skulu frágengin í rétta hæð undir endanlegt slitlag.
- Frágangur á steyptum loftplötum tilbúinn og timburloft að þaki með frágengnu rakvarnarlagi, lagnarásum, raflagnagrind og tilbúin til klæðningar.
- Gluggar ásamt opnanlegum fögum skulu fullgerðir með glerjum og gluggabúnaði.
- Fráveitulagnir innanhúss fullgerðar ásamt neyslulögnum.
- Hitakerfi og loftræsikerfi skulu vera fullgerð og frágengin.
- Stofninntak rafmagns skal tengt og og frágengið svo og raflagnarásir að aðaltöflum.
Matsstig 6
- Mannvirki fullgert án lóðarfrágangs.
- Mannvirki / notkunareining er fullgert(ð) án lóðarfrágangs.
Matsstig 7
- Mannvirki fullgert.
- Mannvirki / notkunareining er fullgert(ð).
- Mannvirki í heild telst fullgert þegar allar notkunareiningar í henni eru fullgerðar.
- Lokið skal gerð og frágangi gangbrauta og bílastæða á lóð og öllum frágangi jarðvegs.
Matsstig 8
- Mannvirki ekki fullklárað en tekið í notkun
- Mannvirki / notkunareining er ófullgert(ð) en tekin í notkun. Við matstig 8 er heimilt að setja brunabótamat á mannvirkið.
Matsstig 9
- Mannvirki í endurbyggingu.
- Lýsir því ástandi þegar verulegur hluti mannvirkis er í endurbyggingu og framkvæmdir það umfangsmiklar að ástæða er til að breyta mati tímabundið.
Matsstig N
- Fasteignaréttindi.
- Mannvirkið hefur verið rifið eða fjarlægt á annan hátt. Fasteignaréttindin eru enn til staðar.
Matsstig U
- Leyfi útrunnið.
- Þjóðskrá Íslands hefur þá skráð mannvirkið í fasteignaskrá sbr. byggingarstig 1. Ef ekki er kominn lóðarleigusamningur er skráningin afmáð úr fasteignaskrá.
Byggingarstig er samkvæmt ÍST 51:2001