Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Árborgarsvæðinu, Akranesi og í Reykjanesbæ
Einu sinni í mánuði, almennt á fyrsta miðvikudegi hvers mánaðar, birtir Þjóðskrá Íslands tölur um fjölda kaupsamninga og veltu á markaði síðastliðinn mánuð. Um er að ræða tölur um allar fasteignir, jafnt íbúðarhúsnæði sem og atvinnuhúsnæði ásamt öðrum eignum.
Í bæði vikulegum veltutölum og mánaðarlegum tölum eru allir þinglýstir kaupsamningar. Inni í þeim tölum eru ekki nauðungarsölur, eða önnur eigendaskipti, svo sem vegna erfða eða þar sem eingöngu er þinglýst afsali án upplýsinga um kaupverð.
Fjöldi makaskiptasamninga
Samhliða útgáfu á tölum um fasteignamarkaðinn birtir Þjóðskrá Íslands tölur um fjölda makaskiptasamninga um íbúðarhúsnæði. Inn í tölum um fjölda kaupsamninga og veltu á markaði eru makaskiptasamningar og því eru þessir samningar ekki viðbót við hina.
Einnig má finna tölur um fjölda makaskiptasamninga utan höfuðborgarsvæðisins frá árinu 2006 og makaskiptasamninga á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 1993 til ársins 2006 undir Talnaefni. Makaskiptasamningar eru þar sem hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign.
Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði
Þjóðskrá Íslands tekur saman og birtir upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði einu sinni í mánuði, annan þriðjudag hvers mánaðar fyrir síðastliðinn mánuð.
Við talningu eru teknir saman þeir samningar sem hefur verið þinglýst á skráða íbúðareign og var þinglýst af sýslumanni innan við ári eftir dagsetningu samnings.
Velta á markaði
Vikulega, á föstudögum, birtir Þjóðskrá Íslands tölur um fjölda þinglýstra kaupsamninga og veltu liðinnar viku. Tölurnar eru unnar upp úr kaupsamningum sem var þinglýst frá föstudegi til og með fimmtudags.
Í vikulegum veltutölum og tölum um fjölda samninga eru allir þinglýstir kaupsamningar. Inni í þeim tölum eru ekki nauðungarsölur, eða önnur eigendaskipti, svo sem vegna erfða eða þar sem eingöngu er þinglýst afsali án upplýsinga um kaupverð.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er gefin út einu sinni í mánuði, á milli 15. og 20. hvers mánaðar klukkan 16:30. Hægt er að sjá útgáfudaga í endurútgefinni útgáfuáætlun fyrir árið 2013.
Við gerð vísitölunnar eru upplýsingar úr þinglýstum kaupsamningum , sem skráðir eru í Kaupskrá Þjóðskrár Íslands, nýttar að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Skilyrðin eru að samningurinn þarf að vera á milli óskyldra aðila, greitt er með reiðufé (eða yfirtöku á lánum), eignin þarf að vera seld á frjálsum markaði og að vera fullbúin.
Með öðrum orðum, nauðungarsölur, makaskipti (og þar sem greitt er með lausafé), sala á fokheldum eignum og samingar á milli skyldra aðila eru ekki nýttir við gerð vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu.
Vísitalan er ekki á föstu verðlagi.