24.04.2012

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í mars 2012

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í mars 2012 var 91 skjali (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 58 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 5.952 milljónir króna en 808 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 25 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 43 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá og 19 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 2.530 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.786 milljónir króna. Heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins var 429 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 254 milljónir króna. Af þessum samningum voru 9 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English