27.08.2012

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 17. ágúst til og með 23. ágúst 2012 var 95. Þar af voru 78 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 3.135 milljónir króna og meðalupphæð á samning 33 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 109 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,9 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 244 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 61 milljón króna og meðalupphæð á samning 15,1 milljón króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 17. ágúst til og með 23. ágúst
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 56 49 4 3 64
Seltjarnarnes 0 0 0 0 2
Mosfellsbær 6 4 1 1 3
Kópavogur 10 9 0 1 16
Hafnarfjörður 12 11 0 1 14
Garðabær 10 5 4 1 7
Álftanes 1 0 1 0 1
Samtals 95 78 10 7 107
Velta (millj. kr.) 3.135 3.142
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 33 29,5
Suðurnes 5 1 4 0 7
Velta (millj. kr.) 109 151
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 21,9 20,5
Akureyri 12 4 6 2 9
Velta (millj. kr.) 244 213
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 20,4 24,8
Árborgarsvæðið 4 1 3 0 4
Velta (millj. kr.) 61 84
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 15,1 19,5

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English