11.12.2009

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 4. desember til og með 10. desember 2009 var 58. Þar af voru 43 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.237 milljónir króna og meðalupphæð á samning 38,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Suðurnesjum*. Það var samningur um sérbýli upp á 30 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 226 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 41 milljón króna og meðalupphæð á samning 13,5 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 4. desember til og með 10. desember
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 15 12 3 0 24
Seltjarnarnes 0 0 0 0 1
Mosfellsbær 2 1 1 0 3
Kópavogur 15 12 0 3 11
Hafnarfjörður 5 1 0 4 6
Garðabær 21 17 4 0 5
Álftanes 0 0 0 0 0
Samtals 58 43 8 7 49
Velta (millj. kr.) 2.237 1.770
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 38,6 36,3
Suðurnes 1 0 1 0 3
Velta (millj. kr.) 30 69
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 30 21,8
Akureyri 12 5 6 1 5
Velta (millj. kr.) 226 91
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 18,8 18,8
Árborgarsvæðið 3 0 1 2 3
Velta (millj. kr.) 41 66
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 13,5 23,9

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English