21.05.2010

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 14. maí til og með 20. maí 2010 var 52. Þar af voru 38 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.360 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 237 milljónir króna og meðalupphæð á samning 47,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 8 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 225 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 39 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,3 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 14. maí til og með 20. maí
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 29 25 1 3 26
Seltjarnarnes 1 1 0 0 1
Mosfellsbær 0 0 0 0 2
Kópavogur 11 8 3 0 10
Hafnarfjörður 9 4 4 1 7
Garðabær 2 0 2 0 3
Álftanes 0 0 0 0 0
Samtals 52 38 10 4 50
Velta (millj. kr.) 1.360 1.391
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 26,2 28,1
Suðurnes 5 2 2 1 4
Velta (millj. kr.) 237 91
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 47,4 25,3
Akureyri 12 8 4 0 5
Velta (millj. kr.) 225 98
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 18,7 19,5
Árborgarsvæðið 2 0 1 1 2
Velta (millj. kr.) 39 43
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 19,3 21,3

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English