Viðskipti með atvinnuhúsnæði
Fasteignaskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í apríl 2010 var þinglýst 33 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og 31 utan þess, heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 5.852 milljón króna en 643 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 12 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Á sama tíma voru skráðir í kaupskrá 12 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og 13 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 424 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 274 milljónir króna. Heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins var 176 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 200 milljónir króna. Af þessum samningum voru 4 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.