02.06.2010

Fasteignamarkaðurinn á Akureyri, Árborgarsvæðinu, Akranesi og Reykjanesbæ í maí 2010

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í maí 2010 var 24. Þar af voru 11 samningar um eignir í fjölbýli, 9 samningar um eignir í sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 891 milljón króna og meðalupphæð á samning 37,1 milljón króna.

Á sama tíma var 6 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu *. Þar af voru 4 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 136 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 samningum þinglýst á Akranesi. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 67 milljónir króna og meðalupphæð á samning 13,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 15 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli og 8 samningar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 307 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,5 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir í maí 2010

Akureyri

Árborgarsvæðið

Akranes

Reykjanesbær

Tegund
eignar

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

166

11

0

0

52

3

102

7

Sérbýli

252

9

121

4

15

2

205

8

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

474

4

15

2

0

0

0

0

Samtals

891

24

136

6

67

5

307

15

 

*Sveitarfélögin: Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English