22.06.2010

Viðskipti með atvinnuhúsnæði

Fasteignaskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í maí 2010 var þinglýst 44 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og 39 utan þess, heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 2.479 milljón króna en 576 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 20 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru skráðir í kaupskrá 14 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og 19 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 551 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 431 milljónir króna. Heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins var 740 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 276 milljónir króna. Af þessum samningum voru 9 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English