09.07.2010

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 2. júlí til og með 8. júlí 2010 var 60. Þar af voru 48 samningar um eignir í fjölbýli, 9 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.588 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,5 milljónir króna.

Á sama tíma var 8 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 165 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 115 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Hann var um eign í sérbýli. Upphæð samnings var 25 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 2. júlí til og með 8. júlí
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 20 15 3 2 28
Seltjarnarnes 1 0 1 0 1
Mosfellsbær 1 1 0 0 1
Kópavogur 12 11 1 0 10
Hafnarfjörður 13 10 2 1 7
Garðabær 13 11 2 0 5
Álftanes 0 0 0 0 0
Samtals 60 48 9 3 51
Velta (millj. kr.) 1.588 1.392
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 26,5 27,3
Suðurnes 8 4 3 1 5
Velta (millj. kr.) 165 192
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 20,6 41,1
Akureyri 4 2 2 0 6
Velta (millj. kr.) 115 158
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 28,7 27,1
Árborgarsvæðið 1 0 1 0 2
Velta (millj. kr.) 25 40
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 25,4 20,7

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English