Viðskipti með atvinnuhúsnæði
Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í júní 2010 var 41 skjali (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 27 utan þess, heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 2768 milljón króna en 565 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 17 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Á sama tíma voru skráðir í kaupskrá 14 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og 12 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 535 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 799 milljónir króna. Heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins var 1262 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 324 milljónir króna. Af þessum samningum voru 2 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.