23.07.2010

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 16. júlí til og með 22. júlí 2010 var 73. Þar af voru 54 samningar um eignir í fjölbýli, 16 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.936 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,5 milljónir króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 76 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,1 milljón króna.

Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 122 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þeir voru um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 40 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,2 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 16. júlí til og með 22. júlí
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 42 34 6 2 29
Seltjarnarnes 0 0 0 0 1
Mosfellsbær 4 0 3 1 2
Kópavogur 10 9 1 0 10
Hafnarfjörður 11 8 3 0 8
Garðabær 4 2 2 0 5
Álftanes 2 1 1 0 0
Samtals 73 54 16 3 54
Velta (millj. kr.) 1.936 1.439
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 26,5 26,6
Suðurnes 4 1 3 0 5
Velta (millj. kr.) 76 198
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 19,1 40,3
Akureyri 6 3 3 0 6
Velta (millj. kr.) 122 161
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 20,3 26,1
Árborgarsvæðið 2 0 2 0 2
Velta (millj. kr.) 40 43
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 20,2 20,7

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English