13.08.2010

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 6. ágúst til og með 12. ágúst 2010 var 42. Þar af voru 28 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.300 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,9 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 138 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 105 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,9 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 159 milljónir króna og meðalupphæð á samning 53 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 6. ágúst til og með 12. ágúst
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 25 20 3 2 28
Seltjarnarnes 1 1 0 0 1
Mosfellsbær 2 0 2 0 2
Kópavogur 7 5 2 0 10
Hafnarfjörður 4 2 2 0 8
Garðabær 3 0 3 0 4
Álftanes 0 0 0 0 0
Samtals 42 28 12 2 52
Velta (millj. kr.) 1.300 1.414
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 30,9 27
Suðurnes 5 3 2 0 5
Velta (millj. kr.) 138 183
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 27,7 40
Akureyri 5 2 3 0 6
Velta (millj. kr.) 105 165
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 20,9 27,2
Árborgarsvæðið 3 1 1 1 3
Velta (millj. kr.) 159 74
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 53 29,7

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English