Viðskipti með atvinnuhúsnæði í júlí
Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í júlí 2010 var 43 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 38 utan þess, heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 3.282 milljónir króna en 409 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 13 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Á sama tíma voru skráðir í kaupskrá 15 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og 13 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 674 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 522 milljónir króna. Heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins var 179 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 116 milljónir króna. Af þessum samningum voru 5 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.