02.09.2010

Fasteignamarkaðurinn á Akureyri, Árborgarsvæðinu, Akranesi og Reykjanesbæ í ágúst 2010

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í ágúst 2010 var 26. Þar af voru 13 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 498 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu *. Þar af var 1 samningur um eign í fjölbýli, 6 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 423 milljónir króna og meðalupphæð á samning 42,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 samningum þinglýst á Akranesi. Þeir voru um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 42 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 14 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 398 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,4 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir í ágúst 2010

Akureyri

Árborgarsvæðið

Akranes

Reykjanesbær

Tegund
eignar

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

191

13

12

1

0

0

211

7

Sérbýli

305

12

138

6

42

2

141

5

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2

1

273

3

0

0

47

2

Samtals

498

26

423

10

42

2

398

14

 

*Sveitarfélögin: Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English