Viðskipti með atvinnuhúsnæði í desember 2011
Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í desember 2011 var 61 skjali (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 69 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 6861 milljón króna en 1656 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 30 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Á sama tíma voru 28 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá og 21 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 1181 milljón króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1091 milljón króna. Heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins var 749 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 472 milljónir króna. Af þessum samningum voru 13 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.