Venjulegt útlit Breyta stillingum
02.07.2012

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 22. júní til og með 28. júní 2012 var 120. Þar af var 91 samningur um eignir í fjölbýli, 21 samningur um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 4.084 milljónir króna og meðalupphæð á samning 34 milljónir króna.

Á sama tíma var 9 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 150 milljónir króna og meðalupphæð á samning 16,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 6 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 246 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 37 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,6 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 22. júní til og með 28. júní
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 70 55 10 5 60
Seltjarnarnes 2 1 1 0 2
Mosfellsbær 1 0 1 0 4
Kópavogur 14 12 1 1 18
Hafnarfjörður 22 16 4 2 16
Garðabær 9 6 3 0 6
Álftanes 2 1 1 0 1
Samtals 120 91 21 8 106
Velta (millj. kr.) 4.084 3.229
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 34 30,4
Suðurnes 9 6 2 1 8
Velta (millj. kr.) 150 158
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 16,7 21
Akureyri 10 4 6 0 9
Velta (millj. kr.) 246 202
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 24,6 23,1
Árborgarsvæðið 2 1 0 1 4
Velta (millj. kr.) 37 76
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 18,6 21,2

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Skipta yfir í venjulegt útlit vefsins
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English