Skýringar við töflu í Verðsjá fasteigna
Fyrsti dálkur frá vinstri sýnir stærðarflokkun eigna. Eignir í fjölbýli eru flokkaðar eftir herbergjafjölda en eignir í sérbýli eru flokkaðar eftir fermetrafjölda. Sérbýli eru einbýlishús og raðhús en allar aðrar íbúðir falla undir fjölbýli.
Annar dálkur sýnir fjölda samninga í viðkomandi flokki. Útreikningar fasteignaverðs byggja á völdu úrtaki kaupsamninga sem gerðir voru á viðkomandi tímabili. Samningar milli skyldra aðila eða þar sem upplýsingar eru ófullkomnar eru ekki teknir með í úrtakið. Fjöldi samninga vísar til fjölda kaupsamninga sem falla í þetta úrtak.
Þriðji dálkur sýnir stærðir eigna. Flatarmál sameignar er ekki talið með í fjöleignarhúsum.
Fjórði dálkur sýnir byggingarár. Það ár sem bygging verður fokheld telst byggingarár hennar.
Fimmti dálkur sýnir nafnverð. Nafnverð merkir kaupverð samkvæmt kaupsamningi.
Sjötti dálkur sýnir staðgreiðsluverð. Staðgreiðsluverð merkir kaupverð ef það væri allt greitt út í hönd á kaupdegi, reiknað út frá greiðslutilhögun og yfirteknum lánum.
Sjöundi dálkur sýnir nafnverð á fermetra.
Áttundi dálkur sýnir staðgreiðsluverð á fermetra.
Efri mörk, neðri mörk og meðaltal
Til þess að gefa vísbendingu um dreifingu þeirra stærða sem birtar eru í töflum um fasteignaverð eru, auk meðaltala, skilgreind efri og neðri mörk. Efri mörk vísa til þess samnings sem hefur raðtölu ofan frá sem fer næst því að vera jöfn 15% af heildarfjölda. Neðri mörk vísa til þess samnings sem hefur raðtölu neðan frá sem fer næst því að vera jöfn 15% af heildarfjölda. Þannig liggja um það bil 70% samninganna milli efri og neðri marka. Efri og neðri mörk eru fundin fyrir hvern dálk óháð öðrum, efri og neðri mörk vísa því til ólíkra samninga í ólíkum dálkum.
Meðaltöl eru ekki birt ef fjöldi kaupsamninga er lægri en 3. Efri og neðri mörk birtast ekki ef fjöldi kaupsamninga er lægri en 7.
Dæmi til útskýringar á efri og neðri mörkum
Dæmi um þriggja herbergja íbúðir í fjölbýli í Reykjavík. Fjöldi samninga í úrtakinu var 792. Meðalstærð íbúðanna var 84 m². Af þeim voru 15% stærri en 102 m² og 15% var minni en 68 m² en 70% þeirra lágu á milli þessara marka. Þá var byggingarár íbúðanna í úrtakinu að meðaltali 1968 og í 70% tilvika var byggingarárið á bilinu 1948 til 1990. Með sama hætti var upphæð 70% samninganna á bilinu frá 7,7 miljónum kr. til 10,9 miljóna kr. Staðgreiðsluverð var í 70% tilfella á bilinu 7,29 miljónir kr. til 10,23 miljónir kr. Fyrir 70% samninganna var nafnverð á fermetra á bilinu 95.014 kr./m² til 128.986 kr./m² og fyrir 70% samninganna var staðgreiðsluverð á hvern fermetra á bilinu frá 90.105 kr./m² til 121.181 kr./m². Efri og neðri mörk í hverjum dálki eru óháð hinum dálkunum. Þannig væri það hrein tilviljun ef til dæmis staðgreiðsluverð á fermetra (121.181 kr./m²) í efri mörkum tilheyrði sama samningi og byggingarár í efri mörkum (1990).