Í þjóðskrá eru skráðar kennitölur manna, nöfn þeirra, kyn, hjúskaparstaða, börn, lögheimili, aðsetur ef við á, póstfang, fæðingarstaður, ríkisfang, hvort menn vilji fá sendan markpóst, hvert sóknargjöld vegna trúfélaga eigi að renna o.fl. auk breytinga sem verða á högum manna.

Haldin er sérstök skrá yfir alla sem látast og hafa verið í þjóðskrá.

Einnig er haldin sérstök skrá yfir erlenda ríkisborgara sem fá úthlutað kennitölu en eru ekki skráðir með lögheimili hér á landi.

Tekið er við tilkynningum fólks um búferlaflutninga, innanlands og milli landa, beiðnum um nafnbreytingar, nafngjafir barna og skráningu sambúðar. Ýmis vottorð eru gefin út hjá Þjóðskrá s.s. fæðingarvottorð, vottorð um hjúskaparstöðu, sambúðarskráningu, búsetu og staðfestingu á dánardegi.

Í þjóðskrá eru allir þeir skráðir sem hafa haft lögheimili á Íslandi síðan 1952. Skráð er kennitala, nafn, lögheimili o.fl. (sjá Táknmál þjóðskrár). Auk þess eru færðar í þjóðskrá breytingar sem verða á högum manna s.s. fæðingar, nafngjafir, breytingar á hjúskaparstöðu, flutningar, andlát o.þ.h. Á grundvelli þjóðskrár eru íbúaskrár gefnar út og unnir kjörskrárstofnar. Ýmis vottorð eru gefin út hjá Þjóðskrá Íslands s.s. fæðingarvottorð, staðfesting á dánardegi, vottorð um hjúskaparstöðu og búsetu. Einnig sér Þjóðskrá Íslands um útgáfu nafnskírteina. Úr þjóðskrá er miðlað upplýsingum til almennings, fyrirtækja, stofnana og stjórnsýslu.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English