Tilkynna á flutning lögheimils innan viku. Tilkynninguna má senda með netskilum, annars er hún undirrituð og send í bréfpósti.
Ef fólk er í hjónabandi eða skráðri sambúð nægir að annað þeirra undirriti tilkynningu um flutning þeirra og barna undir lögaldri. Þetta á við hvort sem sent er með netskilum eða bréfpósti.
Með tilkynningu vegna flutnings barns undir lögaldri, þarf að fylgja skriflegt samþykki forsjármanns/manna eða þess sem barnið var síðast skráð hjá. Taka skal fram hverjum barnið skuli tengjast í þjóðskrá.
Fólk getur ekki tilkynnt flutning lögráða barna né foreldra sinna.
Þinglýstir eigendur, sveitarfélög, heilbrigðisstofnanir og aðrir geta samkvæmt lögum sent beiðni um að lögheimili tiltekins einstaklings sé fært. Þegar beiðni um flutning þriðja aðila berst þjóðskrá eru upplýsingar metnar og málið sett í viðeigandi farveg.
Námsmenn sem sækja skóla í öðru sveitarfélagi geta tilkynnt um tímabundið aðsetur og haldið lögheimili í heimabyggð. Vottorð frá skóla verður að fylgja.
Sveitarfélög taka á móti flutningstilkynningum og senda upplýsingar til þjóðskrár.
Tilkynning vegna flutnings fyrirtækja/félaga er á vef Ríkisskattstjóra.
Reglur
-
Sambúð hefst: Undirrita þarf sérstakt eyðublað sem báðir undirrita.
-
Sambúðarslit: Ef fólk í skráðri sambúð á börn saman verða sambúðarslit ekki skráð í þjóðskrá fyrr en gögn berast frá viðkomandi sýslumanni varðandi forsjá barna.
-
Flutningur barna 17 ára og yngri: Tilkynningu þarf að fylgja skriflegt samþykki forsjármanns/manna eða þess sem barnið var síðast skráð hjá.Taka skal fram hverjum barnið skuli tengjast í þjóðskrá: nafn og kennitala.
-
Flutningur 18 ára og eldri: Sá sem er ekki í hjúskap eða skráðri sambúð þarf sjálfur að tilkynna flutning sinn. Einstaklingar geta ekki tilkynnt flutning lögráða barna sinna eða foreldra.
-
Annað hjóna flytur: Taka skal fram í athugasemdum ef um fyrirhugaðan skilnað er að ræða. Ef fólk í hjúskap er að taka upp samvistir á ný, t.d. eftir skilnað að borði og sæng, þá tilgreinið í athugasemdum á eyðublaði.