31.12.2008

Nýtt fasteignamat

AUGLÝSING
um nýtt fasteignamat.

1. gr.

Samkvæmt 35. gr. laga nr. 6/2001, um skráningu og mat fasteigna, hefur yfir­fasteigna­matsnefnd ákveðið framreiknistuðla fyrir skráð matsverð fasteigna á öllu landinu með hliðsjón af breytingu verðlags fasteigna við kaup og sölu frá síðasta viðmiðunar­tíma matsins til 31. desember nk. Nefndin hefur ákveðið framreikning á matsverði fasteigna þannig:

a. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða, atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða, svo og mats­verð bújarða ásamt íbúðarhúsum og útihúsum á bújörðum og matsverð hlunninda, sbr. þó stafliði b, c, d og e, hækki um 5% og verður fram­reikningsstuðull samkvæmt því 1,05.
b. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða, atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða á höfuð­borgar­svæðinu (Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Garðabæ, Hafnarfirði, Álftanesi og Mosfellsbæ), Reykjanesbæ, Grindavík, Vogum, Akranesi, Akureyri, Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Egilsstöðum, Fellabæ og Hveragerði, sbr. þó staflið d, verði óbreytt og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,00.
c. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða, atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða í Garði, Stykkis­hólmi, Bolungarvík, Hólmavík, Siglufirði, Dalvíkurbyggð, á Búðum í Fáskrúðsfirði, á Stöðvarfirði, Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyjum og Hvolsvelli og ennfremur í þéttbýli í Snæfellsbæ, Eyjafjarðarsveit og Mýrdalshreppi hækki um 10% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,10.
d. Matsverð fjölbýlishúsa og fjölbýlishúsalóða á Seltjarnarnesi, Garðabæ, Hafnarfirði og Ísafirði lækki um 5% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 0,95.
e. Matsverð sumarhúsa og sumarhúsalóða lækki um 10% og verður framreiknings­stuðull samkvæmt því 0,90.

Ofangreind breyting fasteignamats er miðuð við fasteignamatsverð samkvæmt fasteigna­skrá þeirri er gildi tók 31. desember 2007 með síðari breytingum ákveðnum af Fasteigna­mati ríkisins og yfirfasteignamatsnefnd.

2. gr.

Á vegum Fasteignamats ríkisins hefur verið samin ný fasteignaskrá, þar sem matsverð einstakra fasteigna er skráð samkvæmt þeim framreiknistuðlum sem ákveðnir hafa verið samkvæmt framanskráðu. Hin nýja fasteignaskrá inniheldur einnig þær matsbreytingar sem Fasteignamat ríkisins eða yfirfasteignamatsnefnd hefur gert á einstökum fasteignum svo sem við endurskoðun á eldra mati og vegna úrskurða á kærum er kunna að hafa leitt til matsbreytinga.

3. gr.

Fjármálaráðherra hefur staðfest heildareintak hins nýja fasteignamats eins og það hefur verið ákveðið með ofangreindum hætti. Fasteignaskráin mun liggja frammi til sýnis á skrifstofu Fasteignamatsins, Borgartúni 21, Reykjavík, frá og með 31. desember nk. Frá sama tíma mun hið nýja matsverð einnig koma fram í uppflettingu hjá þeim aðilum sem eru í beinu tölvusambandi við stofnunina. Jafnframt verður eigendum fasteigna send sérstök tilkynning um breytingu á matsverði viðkomandi fasteigna.

4. gr.

Með vísan til laga nr. 6/2001 tilkynnir ráðuneytið hér með að nýtt matsverð fasteigna, sem ákveðið er með ofangreindum hætti og fram kemur í staðfestri skrá Fasteignamats ríkisins, tekur gildi 31. desember 2008.

Með auglýsingu þessari fellur úr gildi auglýsing nr. 1255 frá 20. desember 2007.

Fjármálaráðuneytinu, 17. desember 2008.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.

Hafsteinn S. Hafsteinsson.

Auglýsing um nýtt fasteignamat nr. 1183/2008 birt í B-deild stjórnartíðinda 29. desember 2008

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English