Vottorð á netinu

Eftirtalin vottorð er hægt að panta á netinu og greiða með kreditkorti. Kaupandi þarf að auðkenna sig með rafrænu skilríki eða veflykli ríkisskattstjóra. Upplýsingar um auðkenningu.

PANTA VOTTORÐ Á NETINU

Tegund vottorðs Lýsing Verð
Fæðingarvottorð Vottorð um fæðingardag/kennitölu, kyn, fæðingarstað og nöfn foreldra. 900 kr.
Hjónavígsluvottorð Vottorð um hjónavígsludag og -stað auk upplýsinga um hjón, nafn, kennitölu/fæðingardag fæðingarstað, lögheimili og kyn. 900 kr.
Hjúskaparstöðuvottorð Vottorð um núverandi hjúskaparstöðu, t.d. ógift/ur, skilin/n að borði og sæng, lögskilin/n eða að hjúskaparstaða er óupplýst. 900 kr.

Önnur vottorð

Eftirtalin vottorð er ekki hægt að panta á netinu, heldur verður að:

  1. Senda beiðni með tölvupósti á skra@skra.is (nafn greiðanda þarf að koma fram í pöntun ef það er annað en nafn þess sem pantar vottorðið)
  2. Panta beiðni símleiðis
  3. Mæta í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands
Tegund vottorðs Lýsing Verð
Búsetuvottorð Vottorð um búsetu á tilteknu tímabili. 900 kr.
Lögheimilisvottorð Vottorð um lögheimili. 900 kr.
Sambúðarvottorð Vottorð um sambúð. 900 kr.
Vottorð um dánardag Staðfesting á dánardegi 900 kr.
Vottorð um fjölskyldustærð Fjölskyldustærð 900 kr.

Afgreiðslutími og afhending

Að öllu jöfnu er afgreiðslutími vottorða 5-7 virkir dagar.

Ef óskað er eftir að fá vottorðið sent á lögheimili þá bætist sendingartími Íslandspósts við afgreiðslutímann.
Vottorð eru einungis send í tölvupósti ef viðkomandi hefur pantað á netinu eða framvísað skilríkjum í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands.
Framvísa þarf umboði ef óskað er eftir vottorði fyrir þriðja aðila.

Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2009.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English