Þjóðskrá Íslands veitir heimildir fyrir úrtökum t.d. vegna skoðanakannana, spurningavagna, rannsóknarverkefna o.þ.h. Eftirtalin fyrirtæki annast úrtaksgerð og límmiðaprentun skv. samningi við Þjóðskrá:
Advania
Capacent hf
Creditinfo
Ferli ehf
Íslandspóstur hf
Markaðsráð ehf
Markvisst ehf
MMR ehf
Úrtakslistar
Hjá Þjóðskrá Íslands getur fólk undanþegið sig því að vera á úrtakslistum úr þjóðskrá vegna markaðsstarfsemi. Til þess að svo verði er nóg að senda tölvupóst til Þjóðskrár með nafni og kennitölu.
Rannsóknir sem falla undir svokallaðar vísindarannsóknir eru undanskildar.
Sjá reglur nr. 36/2005 um bannskrá þjóðskrár og 28. gr. laga um persónuvernd nr. 77/2000.