Þjóðskrá Íslands skráir einstaklinga í trúfélag, lífskoðunarfélag eða utan trúfélaga og lífsskoðunarfélaga. Framlög ríkisins til skráðra trúfélaga og lífskoðunarfélaga miðast við fjölda einstaklinga í hverju skráðu trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi 1. desember ár hvert.

Skráning í trúfélag, lífskoðunarfélag eða utan trúfélaga og lífsskoðunarfélaga

Enginn má samtímis heyra til þjóðkirkjunni, skráðu trúfélagi utan þjóðkirkjunnar eða skráðu lífsskoðunarfélagi eða fleiri en einu skráðu trúfélagi utan þjóðkirkjunnar eða skráðu lífsskoðunarfélagi. Einungis er hægt að skrá einstaklinga í trúfélög og lífskoðunarfélög sem hafa fengið leyfi ráðherra. Listi yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög á vef innanríkisráðuneytis.

Börn eru skráð í trúfélag, lífskoðunarfélag, utan trúfélaga og lífskoðunarfélaga við nýskráningu í þjóðskrá þ.e. við fæðingu.  Að öðru leyti þarf að tilkynna sérstaklega skráningu í trúfélag, lífskoðunarfélag eða utan trúfélaga.

Foreldrar í hjúskap eða skráðri sambúð við fæðingu barns:

  • Ef foreldrar tilheyra sama trúfélagi, lífskoðunarfélagi eða eru bæði utan trúfélaga verður barn þeirra skráð sama hátt og foreldrar þess.
  • Ef foreldrar tilheyra ekki sama trúfélagi, lífskoðunarfélagi eða eru bæði utan trúfélaga verður barn þeirra ekki skráð í trúfélag, lífskoðunarfélag eða utan trúfélaga heldur verður staða þess skráð ótilgreind.  Foreldrar barns bera ábyrgð á að tilkynna um hvaða trúfélagi, lífskoðunarfélagi eða barn skuli tilheyra eða hvort barn skuli skráð utan trúfélaga á eyðublaði A-281.  Vakin er athygli á því að foreldrar bera sjálfir ábyrgð á skráningu barnsins í trúfélag, lífskoðunarfélag eða utan trúfélaga. Tilkynning um skírn jafngildir ekki skráningu í trúfélag.

Foreldrar barns eru ekki í hjúskap eða skráðri sambúð við fæðingu barns:

  • Barnið verður skráð í sama skráða trúfélag eða lífsskoðunarfélag og það foreldri sem fer með forsjá þess eða verður ella er utan trúfélaga og lífsskoðunarfélaga ef það gildir um foreldrið.  Í þessu felst að barn verður skráð í trúfélag móður við fæðingu barnsins, þar sem hún fer ein með forsjá þar til gengið er frá samkomulagi um forsjá barns hjá sýslumanni.


Erlendir ríkisborgarar eru skráðir í ótilgreint trúfélag við nýskráningu í þjóðskrá en geta tilkynnt um skráningu í trúfélag, lífskoðunarfélag eða skráningu utan trúfélaga eða lífskoðunarfélaga með því að fylla út viðeigandi eyðublað.

Breytingar á skráningu

16 ára og eldri: Þeir sem eru orðnir 16 ára  geta tekið ákvörðun um inngöngu í skráð trúfélag, lífskoðunarfélag eða að standa utan trúfélaga og lífskoðunarfélaga með því að fylla út eyðublað. 
16 ára og yngri: Forsjármenn þurfa að undirrita tilkynninguna, séu þeir tveir þá þurfa báðir aðilar að undirrita tilkynninguna. Hafi barn náð 12 ára aldri skal það einnig undirrita.

Eyðublöð vegna skráningar í trúfélag og lífsskoððunarfélaga eða utan trúfélaga og lífsskoðunarfélaga

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English