Munið að tilkynna flutning innan 7 daga.
Notið eyðublað A-250 (íslenska) eða A-251 (enska)
Eyðublöð
Tilkynnið flutning á netinu
Notið netskil til að tilkynna flutning innanlands á netinu. Sparið ykkur sporin og flýtið fyrir afgreiðslu.
Aðrar leiðir til að tilkynna flutning
- Prentið út eyðublaðið, undirritið og sendið í bréfpósti.
- Þinglýstir eigendur, sveitarfélög, heilbrigðisstofnanir og aðrir geta samkvæmt lögum sent beiðni um að lögheimili tiltekins einstaklings sé fært. Þegar beiðni um flutning þriðja aðila berst þjóðskrá eru upplýsingar metnar og málið sett í viðeigandi farveg.
- Sveitarfélög taka á móti flutningstilkynningum og senda upplýsingar til Þjóðskrár Íslands.
- Tilkynning vegna flutnings fyrirtækja/félaga er á vef Ríkisskattstjóra.
Reglur
-
Tilkynnið flutning innan 7 daga.
-
Tímabundið aðsetur: Námsmenn sem dveljast í öðru sveitarfélagi vegna skólagöngu geta haldið lögheimili í heimabyggð. Haka skal við tilheyrandi reit á eyðublaðinu. Vottorð frá skóla verður að fylgja.
-
Flutningur barna 17 ára og yngri: Tilkynningu þarf að fylgja skriflegt samþykki forsjármanns/manna eða þess aðila sem barnið var síðast skráð hjá. Taka skal fram hverjum barnið skuli tengjast í þjóðskrá: nafn og kennitala. Ef fólk er í hjónabandi eða skráðri sambúð nægir að annað þeirra undirriti tilkynningu um flutning þeirra og barna undir lögaldri.
-
Flutningur 18 ára og eldri: Sá sem er ekki í hjúskap eða skráðri sambúð þarf sjálfur að tilkynna flutning sinn. Einstaklingar geta ekki tilkynnt flutning lögráða barna sinna eða foreldra.
-
Annað hjóna flytur: Taka skal fram í athugasemdum ef um fyrirhugaðan skilnað er að ræða. Ef fólk í hjúskap er að taka upp samvistir á ný, t.d. eftir skilnað að borði og sæng, þá tilgreinist það í athugasemdum. Sá maki sem flutt er til þarf að staðfesta samvistirnar á sérstöku eyðublaði A-252.
-
Ekki er hægt að skrá sig úr sambúð á grundvelli flutningstilkynningar þegar sambúðaraðilar eiga börn saman.