Flutning til Íslands þarf ávallt að tilkynna í eigin persónu með því að koma í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands eða á skrifstofu viðkomandi bæjarfélags, fylla út tilkynningu og framvísa skilríkjum. Tilkynna á flutning innan 7 daga eftir komu til landsins.
Ef sambúð var slitið þegar flutt var erlendis þá er hún ekki skráð aftur nema að Þjóðskrá Íslands berist tilkynning á þar til gerðu eyðublaði.
Flutning til Íslands þarf ávallt að tilkynna í eigin persónu með því að koma í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands eða skrifstofu viðkomandi bæjarfélags, fylla út tilkynningu og framvísa skilríki.
Eyðublöð
Norðurlandabúar
Norðurlandabúar fylla út eyðublað A-253, kennitölu er úthlutað við fyrstu komu til landsins. Við skráningu hjá Þjóðskrá Íslands er þjóðskrá í heimalandi viðkomandi tilkynnt um skráninguna. Ef Norðurlandabúi hyggst dvelja á Íslandi í skamman tíma án þess að flytja lögheimili sitt þá þarf vinnuveitandi eða Vinnumálastofnun að sækja um kennitölu fyrir viðkomandi á eyðublaði A-263 (íslenska) / A-264 (enska).
Eyðublöð
EES/EFTA ríkisborgarar
Fylla þarf út eyðublað A-261 (íslenska) / A-262 (enska) við hverja komu til landsins. Kennitölu er útlutað við fyrstu komu til landsins. Ráðningarsamningur eða staðfesting vinnuveitanda á eyðublaði A-265 (íslenska) / A-266 (enska) þarf að fylgja.
EES/EFTA ríkisborgarar sem ætla að dvelja skemur en þrjá mánuði þurfa að skrá aðsetur á Íslandi og fá úthlutaða kennitölu við fyrstu komu. Vinnuveitandi, menntastofnun, fyrirtæki eða ríkisstofnun þarf að sækja um kennitölu fyrir viðkomandi á eyðublaði A-263 (íslenska) / A-264 (enska).
EES/EFTA ríkisborgarar mega dvelja á Íslandi í 3-6 mánuði án þess að skrá lögheimili hér á landi, en þurfa að skrá aðsetur og fá úthlutaða kennitölu við fyrstu komu. Vinnuveitandi, menntastofnun, fyrirtæki eða ríkisstofnun þarf að sækja um kennitölu fyrir viðkomandi á eyðublaði A-263 (íslenska) / A-264 (enska).
EES/EFTA ríkisborgarar sem ætla að dvelja lengur en 3-6 mánuði á Íslandi þurfa að skrá lögheimili á Íslandi innan 7 daga frá komu til landsins eða um leið og viðkomandi uppfyllir skilyrði um lögheimiliskráningu t.d. innan viku frá undritun ráðningasamnings en þó aldrei seinna en eftir 6 mánuði frá fyrstu komu.
EES/EFTA ríkisborgarar sem ætla að dvelja lengur en 3-6 mánuði sem AuPair eða sjálfboðaliðar, sjá leiðbeiningar í Spurt og svarað um EES/EFTA.
Dvöl umfram 3-6 mánuði án lögheimilisskráningar í þjóðskrá er ólögleg og hefur áhrif á réttindi fólks. Allir sem dvelja eða ætla að dvelja á Íslandi í 3-6 mánuði eða lengur skulu samkvæmt lögum eiga lögheimili hér á landi. Réttur til opinberrar þjónustu og aðstoðar er yfirleitt háður því að viðkomandi sé með skráð lögheimili og því er ráðlegt að lögheimili sé skráð hið fyrsta, ef fólk hyggur á búsetu á Íslandi.
Eyðublöð
Algengar spurningar vegna flutning EES/EFTA ríkisborgara til landsins
Aðrir ríkisborgarar
Aðrir erlendir ríkisborgarar tilkynna dvöl/flutning til landsins til Útlendingastofnunar. Útlendingastofnun tilkynnir Þjóðskrá Íslands um útgáfu dvalarleyfis og í framhaldi af því er viðkomandi skráður í þjóðskrá.
Erlendir ríkisborgarar sem þurfa kennitölu t.d. vegna viðskipta og ætla hvorki að skrá aðsetur né lögheimili á Íslandi þurfa að sækja um kennitölu í gegnum vinnuveitanda, menntastofnun, fyrirtæki eða ríkisstofnun. Nota skal eyðublað A-263 (íslenska) / A-264 (enska).
Eyðublöð
Flutningur barna til Íslands
Ef flytja á barn erlendis frá til Íslands þá þarf að veita upplýsingar um forsjá barnsins. Ef forsjá er sameiginleg og barn flytur frá einu forsjárforeldri til annars þá þarf að gera samning hjá sýslumanni um lögheimili barns áður en farið er frá Íslandi. Ef forsjármaður er einn þá þarf ekki samþykki þess foreldris sem ekki fer með forsjá, en forsjármanni ber að upplýsa umgengisforeldri um flutning lögheimilis með amk sex vikna fyrirvara. Á tilkynningunni þarf að koma fram hverjum barnið á að tengjast í þjóðskrá og skriflegt samþykki þess aðila.
Nánari upplýsingar um lögheimili barns á vef Sýslumanna.
Að öðru leiti gilda sömu reglur um flutning frá Íslandi og um innanlandsflutninga. Sjá flutningur innanlands.
Að auki gilda sértækar reglur um flutning EES/EFTA ríkisborgara til Íslands, nánari upplýsingar eru á eyðublöðum A-261 og A-263.
Umboðsmaður
Þeir sem búsettir eru erlendis geta skráð umboðsmenn á Íslandi í þjóðskrá. Hægt er að senda beiðni um slíkt í tölvupósti. Tilgreina þarf nafn, kennitölu, síma og netfang umboðsmannsins.
Frekari upplýsingar
Tilkynnið flutning hjá Póstinum.
Ríkisborgarar EES- og EFTA-ríkja / EEA & EFTA Citizens (pdf)
Ríkisborgarar utan EES- og EFTA-ríkja / Non-EES & EFTA Citizens (pdf)