Samkvæmt 26. gr. jarðalaga nr. 81/2004 skal árlega gefin út lögbýlaskrá fyrir allt landið á grundvelli upplýsinga úr jarðaskrá. Í lögbýlaskrá skulu koma fram upplýsingar um öll lögbýli á landinu. Í 2. mgr. sama ákvæðis segir að landbúnaðarráðuneytinu sé heimilt að fela öðrum aðila að annast gerð lögbýlaskrár í umboði ráðuneytisins.

Frá árinu 2010 hefur Þjóðskrá Íslands haft það hlutverk að annast gerð lögbýlaskrár og er haldið utan um skrána í réttindahluta fasteignaskrár. Í fasteignaskrá er að finna ítarlegar upplýsingar um fasteignir og eru þar á meðal allar þær upplýsingar sem birta skal í lögbýlaskrá. Samkvæmt 22. gr. jarðalaga skal þinglýsa lögbýlisleyfi og öðlast það þá fyrst gildi. Þinglýsingarbækur sýslumanna er að finna í réttindahluta fasteignaskrár og er nú beintenging milli þinglýsingar lögbýlisleyfis og merkingar viðkomandi eignar sem lögbýlis í fasteignaskrá. Upplýsingar varðandi eigendur og ábúendur eru sóttar í þinglýsingabækur og þjóðskrá.

Skránni er skipt eftir sveitarfélaganúmerum. Í fremsta dálki er að finna upplýsingar um heiti eignarinnar og þar fyrir aftan landnúmer hennar. Þar næst birtast upplýsingar um hvort eignin sé merkt í eyði og er sú merking sótt í fasteignaskrána. Aftasti dálkurinn inniheldur upplýsingar um eigendur og ábúendur og eru eigendur merktir með bókstafnum E og ábúendur með bókstafnum Á. Skráin sem hér er birt miðast við síðustu áramót og má þar finna eignir sem voru skráð lögbýli þann 31. desember 2012.

Lögbýlaskrá - 2012 pdf 3,80 MB

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English