Elstu hús á Íslandi
Húsin sem fjallað er um hér á síðunni eru meðal þeirra elstu á Íslandi og má lesa um fleiri hús í grein Guðmundar J. Guðmundssonar í Ársskýrslu Fasteignamats ríkisins fyrir árið 2000 á bls. 31 - 44. Þar er fjallað um 118 hús sem eru meðal þeirra elstu á Íslandi.
Öxney í Dalabyggð
Skemma, gæti að stofni til verið frá því fyrir 1600. Talið er að skemman hafið áður verið kapella en getið er um kapellu í Öxney árið 1224. Byggingarefni er timbur, torf og grjót en höfundur er ókunnur.
Nesstofa á Seltjarnanesi
Nesstofa er safn sem byggt var á árunum 1761-63. Árið 1980-81 voru eldri breytingar fjarlægðar og húsinu komið í upprunalegt horf en það er hlaðið steinhús. Höfundur er Jacob Fortling og höfundur endurgerðar er Þorsteinn Gunnarsson.
Eyrargata 50, "Húsið" á Eyrarbakka
Húsið á Eyrarbakka hýsir Byggðasafn Árnesinga. Húsið er með merkustu húsum landsins og er timburhús af bolhúsgerð með bárujárnsþaki. Jens Lassen kaupmaður lét reisa húsið 1765 en höfundur er ókunnur.
Langabúð á Djúpavogi
Húsið er safn og er byggingarár þess á tímabilinu 1849-52. Húsið er líklega gert úr eldri viðum en byggingarefni þess er timbur. Margt bendir einnig til að húsið hafi upphaflega verið tvö hús en ekki er vitað hvenær þau voru sameinuð í eitt.
Höfundur er ókunnur.
Viðeyjarstofa í Viðey við Reykjavík
Viðeyjarstofa var upphaflega bústaður landfógeta en er nú veitingahús. Byggingaár 1753-55. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á húsinu gegnum árin. Kvistir voru settir á það 1781, 1794 og 1901 og auk þess voru gerðar ýmsar breytingar þegar húsið var endurreist á árunum 1974-88. Hlaðið steinhús. Höfundur Nicolai Eigtved. Höfundar eldri breytinga eru óþekktir en höfundur breytinga 1974-88 er Þorsteinn Gunnarsson.
Lækjargata 7 í Reykjavík
Menntaskóli.
Byggingarár 1843-46. Stokkbyggt timburhús, tilhoggið í Kristjánssandi í Noregi. Höfundur Jörgen Hansen Koch.
Norska húsið, Hafnargötu 5 í Stykkishólmi
Safn. Byggingarár 1832. Stokkbyggt timburhús. Höfundur ókunnur.
Gröf á Höfðaströnd í Skagafirði
Kirkja.
Upphaflegt byggingarár 1675 en kirkjan var endurgerð úr nýjum viðum 1953. Byggingarefni timbur, torf og grjót. Höfundur Guðmundur Guðmundsson í Bjarnastaðarhlíð. Endurgerð stjórnaði Sigurður Sigfússon trésmíðameistari.
Gudmanndminde, Aðalstræti 14 á Akureyri
Íbúð en var eitt sinn spítali. Byggingarár 1835. Byggingarefni timbur. Höfundur ókunnur.
Aðalstræti 10 í Reykjavík
Veitingahús.
Byggingarár 1762. Byggingarefni timbur. Höfundur ókunnur.
Núpsstaður í Skaftárhreppi
Bænhús. Ágreiningur er um byggingarár bænhússins. Almennt hefur verið talið að það sé frá 1657 en Hörður Ágústsson hefur fært rök fyrir því að það gæti verið mun yngra eða frá miðri 19. öld. Byggingarefni timbur, torf og grjót. Höfundur ókunnur.
Amtmannshúsið á Arnarstapa í Snæfellsbæ
Íbúðarhús. Byggingarár 1774-1787. Flutt að Vogi á Mýrum 1849 og aftur að Arnarstapa 1985-86. Upphaflega reist af Konungsversluninni síðari. Byggingarefni timbur. Höfundur ókunnur.
Vesturgata 6 í Hafnarfirði
Safn. Hús Bjarna riddara Sívertsen. Byggingarár 1803-1805. Byggingarefni timbur og múrsteinn með bindingi. Húsið var endurgert á árunum 1964-1974. Upphaflegur höfundur ókunnur en höfundur endurgerðar er Gunnar Bjarnason.
Landlyst í Vestmannaeyjum
Safn en var upphaflega byggt af dönsku stjórninni til að stemma stigu við ginklofaveikinni sem herjaði í eyjum. Í húsinu var eitt af fyrstu fæðingarheimilum á Íslandi. Byggingarár 1847. Byggingarefni timbur. Höfundur ókunnur.
Keldur í Rangárvallahreppi
Skáli og aðrar byggingar. Tvenn göng grafin í mold frá skála og út að bæjarlæk. Eldri göngin eru frá miðöldum, hugsanlega 12. eða 13. öld en þau yngri frá 1931 grafin að tilhlutan Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar. Skálinn er ekki yngri en frá 16. öld en gæti sem vísast verið eldri, jafnvel frá síðari hluta miðalda. Aðrar byggingar eru mun yngri. Byggingarefni timbur, torf og grjót. Höfundur ókunnur.
Hóladómkirkja í Skagafirði
Byggingarár 1757-63. Hlaðið steinhús. Höfundur Laurids de Thurah.
Turnhúsið í Neðstakaupstað í Ísafjarðarbæ
Byggingarár 1784-85. Stokkbyggt timburhús. Höfundur ókunnur.
Laxdalshús. Hafnarstræti 11, Akureyri
Laxdalshús er talið elst húsa á Akureyri en það var byggt árið 1795. Húsið er úr timbri og er höfundur þess ókunnur.
Heimild: Guðmundur J. Guðmundsson
Sjá einnig í Ársskýrslu 2000 bls. 31 - 44, en þar er fjallað um 118 hús sem eru meðal þeirra elstu á Íslandi.